Um bókasmiðjuna

Bókasmiðjan er vefur þar sem notendur geta hannað sínar eigin ljósmyndabækur. Öll hönnun fer fram á vefnum og notendur geta því unnið í sínum bókum hvar sem þeir eru staddir.

Vefurinn byggir alfarið á íslensku hugviti, en eins og Íslendinga er von og vísa, þá höfum við verið að vinna í forritun vefsins fram á síðustu stundu. Við munum lagfæra ýmislegt á fyrstu dögum desember og vonum að notendur sýni okkur smá biðlund þangað til allt er orðið fullslípað. Þar sem við sinnum sjálfir allri forritun, þá getum við líka tekið tillit til óska notenda um breytingar og úrbætur á vefnum. Þess vegna þiggjum við með þökkum allar ábendingar um hvað má betur fara.

Vefurinn er í eigu Vita ehf og forritun hans fór öll fram innanhúss hjá félaginu.

Útlitshönnun var í höndum Dagnýjar Reykjalín.

Prentun og frágangur bóka fer fram í hágæða prentvél hjá Pixel.

í Brautarholti 10-14.

©2009 Allur réttur áskilinn | Hönnun og forritun: Vitar ehf.