Hjálp

Hvernig skrái ég mig á vefinn?
Til að skrá þig, smellirðu á tengilinn "Skráðu þig hér í fyrsta sinn" sem er efst í hægra horni á vefnum.
Hvernig byrja ég að hanna bækur?
Á forsíðu vefsins er hnappur sem á stendur "Byrja hér". Smelltu á þann hnapp, og þá opnast hönnunarviðmótið.
Hvernig hleð ég inn myndum?
Vinstra megin í hönnunarviðmótinu er flipi sem heitir "Myndir". Smelltu á hann og smelltu svo á hnappinn "Hlaða inn mynd". Þar geturðu valið mynd á tölvunni þinni sem þú vilt hlaða inn. Upphleðslutími fer eftir nettengingu þinni, en með hæga nettengingu getur upphleðsla á stórri mynd tekið 1-2 mínútur.
Hvernig bæti ég inn nýrri síðu?
Ofarlega í hönnunarviðmótinu er hnappur sem heitir "Síða". Smelltu á hann og veldu svo hvort þú viljir bæta við tómri síðu, eða hvort þú viljir velja síðu úr tilbúnum sniðmátum.
Á hvernig pappír eru bækurnar prentaðar?
Bækurnar eru prentaðar á hágæða 170 gramma pappír sem kallast Magno Satin. Þessi pappírinn er mikið notaður í ljósmyndabækur. Prentunin er gerð á HP Indigo 5000 prentvél, en 8 af hverjum 10 ljósmyndabókum í heiminum eru prentaðar á HP Indigo vélar. Kápurnar eru svartar með hörðum spjöldum. Prentun og frágangur bókanna fer fram hjá Pixel í Brautarholti 10-14.
Ég get ekki opnað forskoðunina. Hvað er að?
Til að forskoða bókina, smellirðu á "Forskoða" hnappinn efst í hönnunarglugganum. Við það opnast nýr gluggi þar sem þú getur flett allri bókinni á þægilegan hátt. Ef þessi gluggi opnast ekki, þá þarftu að skoða stillingar í vafranum þínum og leyfa sprettiglugga (pop-up window) fyrir vefsvæðið www.bokasmidjan.is.
Kröfur til vafra og uppsetningar á tölvu
Til að þú getir notað vefinn, gerir kröfu um að þú sért með Flash uppsett á vélinni þinni og sért með nýlegan vafra. Vefurinn hefur verið prófaður ítarlega með Internet Explorer 7 og 8, sem og Firefox 3.5.
Hvaða guli þríhyrningur er þetta sem birtist á sumum myndunum?
Ef þú stækkar mynd það mikið að ekki er hægt að prenta hana í 300 punkta upplausn, þá birtist gulur viðvörunarþríhyrningur neðst í vinstra horni myndarinnar. Þetta gerist líka ef þú stækkar skreytingu eða myndaramma mjög mikið. Við mælum með að hafa allar myndir í minnst 300 punkta upplausn, en yfirleitt er samt í lagi að hafa hana aðeins minni. Skreytingar og myndarammar mega yfirleitt vera í minni upplausn en 300 punktum og þá má horfa framhjá þessum viðvörunarþríhyrningum. Þessi guli þríhyrningur prentast auðvitað ekki á blaðsíðurnar þegar við prentum bókina.
Hvað prentast á blaðsíðurnar?
Allt sem þú setur á síðurnar prentast út nema gulu viðvörunarþríhyrningarnir og gráu viðmiðunarlínurnar sem eru við jaðar blaðsíðnanna. Það sem er fyrir utan gráu viðmiðunarlínurnar prentast yfirleitt ekki, svo það borgar sig ekki að setja einhver smáatriði þangað sem þú vilt vera viss um að birtist í endanlegri bók.
Hvaða gráu kassar eru þetta á blaðsíðunum?
Á öllum síðunum birtist gráar línur rétt við ystu mörk síðunnar. Þessar línur eru til að sýna hvar endanleg blaðsíða endar. Hönnunarsvæðið er aðeins stærra en blaðsíðan sem við prentum á og þess vegna er smá rönd yst á hönnunarsvæðinu sem ekki verður prentuð í bókinni. Ef þú ætlar að láta mynd fylla alveg út í jaðar blaðsíðunnar, þá skaltu láta hana ná alveg út fyrir hönnunarsvæðið, ekki láta hana stoppa þar sem gráu línurnar eru.

Á kápunni birtast tveir gráir kassar. Kassinn sem er vinstra megin sýnir nokkurn veginn það svæði sem lendir á bakhlið kápunnar, en kassinn sem er hægra megin sýnir það sem mun birtast á framhlið kápunnar, þ.e.a.s. framhlið bókarinnar. Bilið á milli þessara tveggja kassa lendir á kilinum og ef þú vilt setja texta á kjölinn þá skaltu setja textann þar. Kjölurinn getur reyndar verið misstór eftir því hversu margar blaðsíður eru í bókinni og því mættirðu láta textann ná aðeins út fyrir þetta svæði ef bókin þín er mjög þykk.
©2009 Allur réttur áskilinn | Hönnun og forritun: Vitar ehf.