Notkunarskilmálar

Skilmálar þessi tilgreina hvernig notendur skulu nota vefinn bókasmiðjan.is og hvaða ábyrgð þeir bera. Einnig tilgreina þeir hvaða ábyrgð rekstraraðili vefsins ber. Allir notendur þurfa að samþykkja þessa skilmála til að geta notað vefinn.

  • Notandi skal skrá sig undir réttu nafni.
  • Notandi skal gæta fyllsta velsæmis í allri notkun sinni á vefnum.
  • Notandi ber fulla ábyrgð á því efni sem hann hleður inn á vefinn og því sem hann notar í hönnun á sínum verkum. Efni sem hann setur inn má ekki brjóta höfundarréttarlög, og má ekki vera meiðandi á nokkurn hátt.
  • Rekstraraðila vefsins er heimilt að fjarlægja hvaða efni sem er af vefnum. Sérstaklega á þetta við um efni sem talið er ósiðlegt eða meiðandi fyrir einhverja einstaklinga.
  • Notandi skal skoða sín verk vandlega áður en hann gengur frá pöntun. Ekki er hægt að breyta verki eftir að pöntun er frágengin.
  • Rekstraraðila er heimilt að breyta verki ef talið er augljóst að um mistök hafi verið að ræða við hönnun.
  • Rekstraraðili gerir sitt besta til að tryggja öryggi gagna. Rekstraraðili er ekki bótaskyldur ef utanaðkomandi aðili kemst í gögn eða ef einhver gögn skemmast eða glatast.
  • Rekstraraðili ættartal.is er ekki bótaskyldur ef notandi getur af einhverjum ástæðum ekki notað vefinn.
  • Rekstraraðili ættartal.is er ekki bótaskyldur gagnvart hvers konar tjóni eða miska sem hlýst af notkun vefsins eða af upplýsingum sem á honum birtast, eða verkum sem prentuð eru með aðstoð vefsins.
  • Rekstraraðila er heimilt að loka aðgangi notenda ef grunur leikur á að notkun viðkomandi sé ekki í samræmi við notkunarskilmála.
  • Verð og vörulýsingar á vefnum eru settar fram með fyrirvara um villur. Ef í ljós kemur að frágengin pöntun var greidd á röngu verði, er rekstraraðila heimilt að leiðrétta verðið eftir á, ellegar hætta við prentun og endurgreiða kaupanda.

Rekstraraðili bókasmiðjunnar á Íslandi er fyrirtækið Vitar ehf.

f.h. bokasmidjan.is
Brynjólfur Ómarsson
Vitar ehf
©2009 Allur réttur áskilinn | Hönnun og forritun: Vitar ehf.